Leita í fréttum mbl.is

Ég var í fjármálaráðgjöf hjá Glitni í dag

Fyrir nokkrum vikum var okkur hjónum boðið að þiggja fjármálaráðgjöf hjá Glitni og fyrir forvitni sakir þáði ég það boð. Ég var svo sem ekki viss um að af þessu yrði en klukkan 9 í morgun hringdi þjónustufulltrúi og minnti okkur á ráðgjöfina. Nú við mættum og þáðum allskonar gjafir í boði ríkisins og löguðum til á reikningum og annað í þeim dúr.

Einhvernvegin fann maður samt fyrir feigðinni og það þrátt fyrir fína þjónustu fulltrúans. Ég hef verið í viðskiptum við þennan banka og forvera hans í tæp 40 ár og finnst miður að hann sé allur.

En samt er, á undarlega tvískinnungslegan hátt, feginn að Davíð skyldi svíkja loforðið sem hann gaf Glitni því ef hann hefði staðið það loforð væri hvort tveggja Glitnir og íslenska ríkið feigt.  Og nú lengist í það minnsta í hengingaról ríkisins.

Er á meðan er...


mbl.is FME tekur Glitni yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahahaha mér finnst þetta kómískt.. fjármálaráðgjöf hjá Glitni. En ekki þar fyrir að starfsfólkið í bankanum er jafn hæft og það var áður og á meðan yfirmenn þess fóru á eyðslufyllerí.

Jóna Á. Gísladóttir, 8.10.2008 kl. 09:57

2 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

 Sæl stutta - Já mér fannst þetta býsna grátbroslegt líka. En við skynjuðum það á starfsfólkinu að þetta var búið. Nei það er sko ekki við almennt starfsfólk að sakast... ábyrgðin hvílir á þeim sem áttu að fylgjast með og setja regluverkið. Og hverjist skyldu það nú hafa verið?

Kv. Steini

Þorsteinn Gunnarsson, 8.10.2008 kl. 11:39

3 identicon

Ég er sammála Jónu hér að ofan... þetta er kómískt, að fara í fjármálaráðgjöf hjá einhverju fyrirtæki sem er nýfarið á hausinn.

 Langar til að benda á gott framtak nokkurra einstaklinga, alhliða fjármálaráðgjöf fyrir einstaklinga:

 www.fjarvit.is

Það hefði væntanlega verið betri lausn.

Ég vona að þú takir athugasemdinni ekki illa, meiningin var alls ekki auglýsing heldur meira að benda á fleiri leiðir í ráðgjafaþjónustu :-)

 Mbk.

Örvar J. Arnarsson

Örvar Jens Arnarsson (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 17:41

4 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@ Örvar - Við fórum nú reyndar ekki til að sækja okkur ráðgjöf heldur til að hringla aðeins með reikninga, en fannst þetta fyndið engu að síður.

Gangi þér vel með batterýið!

Þorsteinn Gunnarsson, 4.11.2008 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband